Hugsanir unglings um lífið

07.08.2011 01:14:31 / jennyes

Fann flotta naglasíðu!!

Heyy! Ég fann mjög flotta naglasíðu. Þið verðið að sjá!!

naglastulkan.blogcentral.is




» 0 hafa sagt sína skoðun

10.02.2011 07:51:55 / jennyes

Helú allir bloggarar!!

Hvað segist?? Núna styttist og styttist í ferminguna mína sem verður Awesome!!! Þemað verður hvítt, ljósgrænt og ljósbleikt því að það eru uppáhaldslitirnir mínir. Veislan verður haldin í söngskóla Maríu Bjarkar en ég fermist í Lágafellskirkju. Hljómar þetta ekki spennandi?? Við erum búin að kaupa kjólinn...hann er svartur (ég veit það hljómar ekki besti liturinn fyrir fermingu en hann er bara svo flottur) og er búinn til úr einhverju geðveikt flottu efni ;) Ég sá áðan að það eru 7 búnir að kíkja á síðuna í dag og klukkan er bara 20 mín. í 8!!! Um morgun!!!!!!Og ég er búin að fá 9706 flettingar frá upphafi!!! Segjum svo að það hafi 9706 manneskjur kíkt in á síðuna mína og þá er það 0,9% af þjóðinni!!! Það er mjög einfalt að reikna það út... fyrst gerir maður fjölda af íslendingum (ca. 318.500) og mínusar flettingarnar frá (9706) og tekur svo mismuninn og deilir í þjóðina!! Mjög einfalt! Þannig að hér kemur þetta einfaldara
318500 - 9706 = 308794
308794 / 318500 = 0.9
It's no rocket sience! ;)
En verð að fara! Borða, klæða mig og gera mig tilbúna fyrir skólann. Og náttúrulega fara í skólann ;) Skóli, here i come!
See ya ;)
Jennyes

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2010 12:16:09 / jennyes

Slúðurstelpan

Hæ allir:d 
Ég fann flotta slúðursíðu sem ég mæli með....hún heitir sludurstelpan.central.is og þar er einhver sem skrifar slúður um stjörnurna:lol:
Sjáumst seinna
Jennyes

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.09.2010 23:11:19 / jennyes

Maraþon!

How i met your mother maraþonið er byrjað. Ég er búin með þátt 3 í fyrstu þáttaröð. Viltu vera með? Ef þú vilt það, segðu mér það þá í athugasendum. Þú getur horft á alla how i met your mother þættina og allt annað sem þú vilt á www.free-tv-video-online.info . Þetta er snilldar síða. Maður fer bara inn á hana og horfir á þætti og nýjustu myndirnar sem ekki eru komnar í bíó á Íslandi og allt! Það er ekkert vesen að hafa notandanafn og lykilorð eða neitt svoleiðis
See ya:*
Jennyes


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.07.2010 19:36:48 / jennyes

Árekstur

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/07/16/fjogurra_bila_arekstur/
Við vorum á leiðinna á ættarmót Teigara. Systir mömmu og familía fremst, amma og Marín í miðjunni og ég og mamma seinastar. Við vorum að fara að koma að hringtorginu í Hveragerði (þar sem eru ógisslega sætar velkomin dúkkur) Allt í einu hægðist á umferðinni og allt stoppaði. Bíllinn fyrir aftan okkur mömmu sá það greinilega ekki strax en náði ekki að stoppa bílinn. Hann ætlaði að sveigja útaf en gat það ekki og lenti í horninu á bílnum okkar. Við hentumst yfir á ömmu og Marínu og þær á systur mömmu. Við náðum að sveigja öll útaf og fórum úr bílnum. Það vantar hornið á bílinn okkar og hann er beiglaður að framan. Bíllinn hennar ömmu er beiglaður að framan og aftan og bíll systur mömmu að aftan.

Bíllinn okkar er ónýtur og líka jeppinn en hinir eru bara beyglaðir og virka enn.
Lögreglan kom og talaði við okkur öll. Svo vorum við öll skráð.
Við opnuðum skottið og allir hjálpuðust að við að tæma úr því. 
Á meðan mamma og systir hennar fóru keyrandi á einum bílnum sem virkaði enn til selfossar að sækja bílaleigubíl, tókum við hin öllu með stökustu ró og sátum í grasinu, biðum og fengum okkur kex, banana og ávaxtasafa ;)
Svo komu systurnar með bílaleigubílinn.
Við settum allt í hann og svo kom bíll að sækja bílinn okkar.
En á meðan systurnar voru á Selfossi, þá tæmdum við Húni bílinn.Tókum sköfuna úr hurðinu og allt úr litla hólfinu á milli framsætanna og svoleiðis.
En sem betur fer eru allir í lagi.

Ef þú sást okkur, endilega skrifa athugasemd ;)

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.05.2010 22:24:53 / jennyes

Je Ne Sais Quoi

hera a svidi

Ég skil ekki pointið með þessu lagi. Það þolir það enginn, en samt er ekkert búið að gagnrýna það. Þetta lag er eins og eitthvað lag til hliðar sem enginn nennir að hugsa um.

Jájá, það komst upp úr undankeppninni en það þýðir ekki að þetta sé gott lag. Það voru bara fullt af miklu verri lögum sem Hera var að keppa við.

Árið 2008 sendi Örlygur Smári út lagið This is my life sem var sungið að Regínu og Friðriki. Tvem árum seinna sendi hann út næstum því eins lag og ætlast til þess að það vinni. Svo er Hera líka staðráðin í að hún vinni en það er ekki eins og það sé mjög líklegt. Það eru fullt af fleiri miklu betri lögum en þetta lag er eins og tildæmis Armenía og Rúmenía. Samt kýs ég lagið frá Armeníu vera best.

Mér finnst eldri útsetningin á laginu (Je Ne Sais Quoi) vera betri en nýja. Hera náði vel upp á tóninn. Ég hef heyrt hana gera miklu hærri tón og hann heppnaðist bara vel!

Aðalhugsunin á bak við þetta er til Örlygs Smára:

Örlygur Smári...........þú ert búinn!


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2010 18:27:19 / jennyes

Leikurinn

Leikurinn er svona:
1. Veljið Karl, konu og hús og skrifið mér hvað þið hafið valið í geztó
2. Veljið vinnu (geztó)
3. Þið getið keypt hluti og þannig þegar þið eruð komin með pening
4. Það er hægt að eignast börn

Ef að það eru einhverjar spurningar, spyrjið þá í geztó
kv. Jennyes


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.02.2010 16:46:39 / jennyes

Jæja...

...Nú er ég búin með leikinn aftur. Maður getur ekki hangið endalaust á FACEBOOK svo að maður verður að hafa eitthvað annað að gera. Muna að skrifa og panta í GEZTÓ

kv.
Jennyes


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.08.2009 09:09:59 / jennyes

Jæja, nú styttist í afmælið mitt

Og ég verð 12 ára
Ég hlakka ekkert smá til.
Það er þrettánda ágúst og  munið seinasta ár?
Þá var mamma mia þema
í ár er Harry Potter þema
þeir sem ég býð í afmælið eru:

Thelma
Sóllilja
Ingibjörg
Diljá
Kristbjörg S
Fanney
Marín
Berglind
og Aron

en
See ya

-Jennyes


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.05.2009 23:23:00 / jennyes

Kæru bloggarar

JÚHÚÚÚÚÚÚ!!!!!!!!!!
ÍSLAND VAR Í 2 SÆTI Í EUROVISION!!!!!!!!!!
NOREGUR VANN EN ÞAÐ ER ALLT Í LAGI, ÞVÍ AÐ ALLIR ÍSLENDINGAR ERU ÁNÆGÐIR MEÐ AÐ VERA Í TOPP 5

YOHANNA hélt fyrst að Ísland myndi lenda neðarlegar og hennar draumur var að lenda í topp fimm:haha:

Hlakka til næsta ár
ég ætla að senda lag í eurovision og kannski syngja sjálf
er samt ekki búin að ákveða
Hvernig finnst ykkur?

-Jennyes

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.05.2009 21:07:44 / jennyes

Kæru bloggarar

Jæja, nú eru lögin úr seinni undanúrslitunum búin og nú eru úrslitin komin.
Eftirfarandi lög komust áfram:
Croatia, Noregur, Danmörk, Azerbaljan, Grikkland, Litháen, Mondova, Albania, Ukraina og Eistland.
Allt þetta voru flott lög.
Ég hélt samt mest með Noregi, Albaníu og Grikklandi.
best af þessum lögum var noregur.
Allavega fannst mér það:haha:
En jæja, það er STÓRT kvöld á laugardaginn
Greyið mamma verður fyrir norðan og á ekki eftir að geta séð Eurovision
Kannski sér hún það, en það er 30 ára fermingarhittingur hjá henni og gömlum fermingarbörnum um helgina, en líklega horfa þau á Eurovision öll saman.
Pabbi hefði líka farið en þá hefði hann skilið mig eftir, og svo er hann ekki mikið fyrir að vera í með fjölda fólks.
En ég verð að fara núna
Mamma ætlar aðeins að facebook-a
see ya:lol:

-Jennyes


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.05.2009 21:01:25 / jennyes

Kæru bloggarar

Ég er svo happy, i could die!!!!
ÍSLAND KOMST ÁFRAM:haha::haha::haha::haha::haha::haha:
JÚHÚÚÚÚ!!!!!!!!!!!!!!:haha::p:):o:lol::d8);):!:
IS IT TRUE?
ÉG BARA SPYR
JESSSSSSSSSSSSSSSSSSS:haha::haha::haha::haha::haha:

-JENNYES EUROVISION-FRÍK:haha::haha::haha::haha::haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2009 20:19:34 / jennyes

Kæru bloggarar

Kæru bloggarar
Nú langar mig að tala aðeins um Eurovision og gamlar sálir.
Allir vita hvað Eurovision er, söngkeppni evrópu.
Hér inná síðunni var ég að láta inn íslensk Eurovision lög.
Ísland byrjaði í Eurovision árið 1986 og núna er árið 2009.
Það er aldeilis munur.
Fyrsta lagið sem við sendum í Eurovision var ,,Gleðibankinn,, eitt þekktasta lag íslands og svo sendum við lagið ,,þú og þeir,, eða ,,sókrates,, árið 1988, en ekki margir á mínum aldri kannast við það.
Við sendum lagið ,,eitt lag enn,, árið 1990 og ,,Draumur um Nínu,, eða það sem flestir kalla bara ,,Nína,, árið 1991.
Munið þið eftir því?
Stefán og Eyfi sungu það í brjáluðum búningum.
Fjólubláir og Bláir.
Lagið í ár er ,,Is it true,, með geðveikum flutningi, en það er hún Yohanna sem syngur það.
Hún heitir samt í rauninni Jóhanna Guðrún.
Margir muna eftir henni.
fyrir 6 árum var hún uppgötvuð, aðeins 12 ára að aldri, og hún er nú aðeins 19 ára.
Í fyrra stigu Friðrik Ómar og Regína Ósk upp á svið með lagið ,,This is my life,,
Í ár vita flestir hverjir eiga eftir að sigra Eurovision.
Við Íslendingarnir vonum auðvitað að Ísland vinni, en flestir halda samt að Noregur vinni, með Lagið ,,Fairytale,, í flutningi Alexander Rybak.
Það er líka uppáhaldslagið mitt.
En nú er nóg talað um Eurovision.
Gamlar sálir!
Flestir segja að ég sé gömul sál.
Sem er satt, ég er 11 ára líkamlega en ég er sextug í anda:haha:
eitt af uppáhaldslögunum mínum er ,,Only Yesterday,, í flutningi the Carpenters, frá árinu 1970 þegar mamma og pabbi voru 5 ára
Vá!
Og fleiri lög eins og þetta
en verð að fara núna
er að fara að hlusta á ,,fairytale,,
see ya:lol:

-Jennyes

» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2009 18:13:46 / jennyes

Kæru bloggarar

Kæru bloggarar
Nú er kominn leikur. Það er fyrir neðan Íslenskar draugasögur og heitir leikur.
Þið finnið allt um leikinn í um leikinn, en ég hef ekkert meira að skrifa um núna.
VERIÐ MEÐ Í ÆÐISLEGA LEIKNUM!!!

-Jennyes


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2009 18:50:30 / jennyes

Kæru Bloggarar

Kæru bloggarar

Langt síðan síðan, en samt ekkert voðalega langt
Hún elskulega móðir mín og hinn yndislegi faðir eiga brúðkaupsafmæli í dag (21 ár fjúff)
og hún diljá vinkona mín (sem að kallar mig alltaf flensu en ég skil hana bara alls ekki) verð ég að segja:
Diljá, skrifaðu nú einhvern tíma eitthvað inná síðuna þína (það er ekkert skemmtilegt ef að þú skrifar aldrei inná hana)
Annars er þetta allt sem ég ætla að segja...en bíddu nú við, það er tvennt í viðbót
ég er að fara að gista hjá Lenu siss í nótt og það verður örugglega mjög gaman
Og svo ætla ég að setja inná síðuna mína þannig að ef eitthvað undarlegt hefur gerst við þig, þá sendir þú mér það á netfangið mitt jenny.elisabet@hotmail.com
Ef þú skilur ekki hvað ég meina þá meina ég að ef að þú hefur orðið vör við eitthvað skrýtinn draugagang þá sendir þú mér söguna
annars var þetta allt en mér langar að skrifa meira svo að ´þið verðið lengur á síðunni
Mér dreymdi skrýtinn draum í nótt
mig dreymdi að ég dreymdi draum inní draumi
skiljið þið ekki?
í draumnum í draumnum var ég heima hjá mér (ein um kvöld) og þá kom brálað furðudýr inn og tók mig
Furðudýrið fór með mig út í skóg (auðvitað reyndi ég að losna) en furðudýrið var svo ósköp gott við mig að ég reyndi að meiða það ekki.
Það setti mig inn í helli og þegar það fór, þá hljóp ég útúr hellinum en furðudýrið sá mig og hljóp á eftir mér og ætlaði að drepa mig
Þá var það orðið allveg brjálað með vígtennur og alles
Svo vaknaði ég í draumnum og þá var ég ein heima hjá mér (aftur) ógeðslega hrædd og læsti öllum hurðum og gluggum
Þetta var skrýtið ekki satt?
svo dreymdi mig í gær að ég labbaði upp á mont everest og þegar ég var komin upp á topp þá sá ég kofa (ég var rosalega þreytt eftir gönguna) og ég fór inní hann og auðvitað var það enginn en ég lagðist í eitt rúmið og sofnaði en ég vaknaði aftur við að kofinn rann af stað og ég inní honum og það var belti í rúminu (mjög skrýtið) sem ég spennti á mig og ég rann niður allt mont everest og þá endaði draumurinn
en núna nenni ég ekki að skrifa meira
(eða ég nenni því allveg en ég ætla bara að fara að gera eitthvað annað)
see ya:lol:

-Jennyes


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Könnun
Finnst þér leikurinn skemmtilegur?

Dagsetning
28. janúar 2012
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 295 dögum
Mamma :D
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 168 dögum
14
Fólk við Engisgötu
Verslunarmiðstöðin